Tími:

Fimmtudagur 08/03 kl. 17-20
Laugardagur 10/03 kl. 10-14
Fimmtudagur 15/03 kl. 17-20 

Staður:

MS-húsið, Sléttuvegi 5, Reykjavík.

Verð:

5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.

Lýsing:

Námskeiðið er fyrir maka fólks með MS og byggist á fræðslu og umræðum. Tilgangurinn með námskeiðinu er að fólk í svipaðri stöðu hittist og deili reynslu sinni og fái fræðslu. Fjallað verður um streitu, tilfinningar, áhrif MS á fjölskyldulífið, sjúkdóminn, slökun og fleira. Einnig eru ræddar leiðir til að auka lífsgæði fjölskyldumeðlima. Þátttakendur eru 6 til 8. Námskeiðið er í 6 skipti og stendur í 4 til 6 vikur. Í lok námskeiðs er hægt að stofna sjálfshjálparhóp.

Umsjón:

Sigríður Anna Einarsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldu- og hjónaráðgjafi.

Skráning:

Skráning hér á síðunni  eða á msfelag@msfelag.is. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568-8620.

ATH! Lágmarksfjöldi þátttakenda verður að nást til að námskeiðið sé haldið, dagsetningar að ofan eru því gefnar með fyrirvara um breytingar.