Til að lesa sumar greinarnar þarftu forritið Acrobat Reader. Forritið er hægt að nálgast hér.
Lýsing: Könnun MS-félagsins á reynslu þeirra, sem fá viðnámslyfið Tysabri er sú, að nær allir sem til náðist hafa annað hvort jákvæða eða mjög jákvæða reynslu af lyfinu. Könnunin náði til 29 Tysabriþega af alls 43 einstaklingum, sem eru núna í Tysabri-meðferð og er niðurstaðan sú, að 93% hópsins hafa fundið jákvæðar breytingar. Einungis 14% hafa fundið fyrir aukaverkunum, en 76% aðspurðra höfðu fundið fyrir einni eða fleiri aukaverkunum af eldri lyfjum. Þá er athyglisvert, að 72% þátttakenda í könnuninni höfðu ekki fengið kast síðan þeir byrjuðu á Tysabri.
Lýsing: Hér á landi eru um 330 einstaklingar með MS og er áætlað að um 85 þeirra uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til natalizumab-meðferðar. Höfundar greinarinnar fjalla um þá miklu framför í meðferð MS-sjúklinga með tilkomu Tysabri
Lýsing: Viðtal við Valdimar Valdimarsson. Viðtalið birtist upprunalega í Megin Stoð.
Lýsing: Viðtal við Þóreyju Gísladóttur. Viðtalið birtist upprunalega í Megin Stoð.