MS Setrið
Sléttuvegi 5,
103 Reykjavík
Sími 568 8630
Bréfsími 568 8688
Netfang mssetrid@msfelag.is
Dagvist MS félags Íslands var stofnuð 1986 í þeim tilgangi að veita MS sjúklingum umönnun og endurhæfingu. Þeim einstaklingum sem sökum viðverandi fötlunar áttu ekki afturkvæmt út í atvinnulífið, þurftu aðstoð við daglegar athafnir, en ekki á bráðaþjónustu að halda.
Heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytið veitti í upphafi starfsleyfi fyrir 15 einstaklinga á dag, starfsmenn voru 3 og heimilisbragur ríkjandi. Fram til ársins 1995 var starfsemin í húsnæði á vegum Reykjavíkurborgar, en árið 1993 réðst MS félag Íslands í byggingaframkvæmdir og 2 árum síðar eða 15. júní 1995 flutti Dagvistin starfsemi sína að Sléttuvegi 5, Reykjavík. Árið 2000 var Dagvistin gerð að sjálfseignarstofnun, nafni breytt í Dagvist og endurhæfingamiðstöð MS sjúklinga (d&e MS), með starfsleyfi fyrir 40 einstaklinga á dag. Á sama tíma var 150 fermetra viðbygging tekin í notkun.
d&e MS er fyrst og fremst starfrækt fyrir einstaklinga með MS sjúkdóm og hafa þeir greiðan aðgang að þjónustunni óháð aldri. Síðan fer það eftir aðstæðum stofnunarinnar hverju sinni hverjum hún sinnir til viðbótar, en þar ræður hjúkrunarþyngd mestu.
24. janúar 2008 var formlega tekin í notkun 180 fm viðbygging sem stórbætti alla aðstöðu starfseminnar.
24 árum eftir stofnun Dagvistarinnar var ákveðið að breyta nafni hennar. Eldra nafn þótti frekar vísa til barna en fullorðinna og erfitt gæti verið að sækja þjónustu til staðarins vegna þess. Efnt var til samkeppni um nýtt nafn og þann 3. febrúar 2010 var það tilkynnt í hófi á Sléttuveginum. Alls bárust um 70 tillögur en það nafn sem bar sigur úr bítum var tillaga Bergþóru Bergsdóttur nafnið SETUR nánari útfærsla: MS Setrið með viðbótinni þekking-þjálfun-þjónusta.