Um níuleytið í gærkvöld lenti FLY FOR MS Cessna-flugvélin á Reykjavíkurflugvelli eftir erfitt flug í lélegu skyggni frá Kulusuuk á Grænlandi. Vegna slæmra veðurskilyrða, einkum á Grænlandi, tafðist flugið um 12 klukkustundir. Með í vélinni voru fjórir sjálfboðaliðar frá New York, þeir Andrei Floroiu, forsprakki átaksins, Keith Silats, Florian Trojer og Mike Sweeney
Á fimmtudag lenda Andrei Floroiu og Keith Siilats frá New York sex manna Cessna-flugvél á Reykjavíkurflugvelli í því skyni að vekja athygli á MS sjúkdómnum. Reykjavík er fyrsti formlegi viðkomustaður hópsins. MS-félag Íslands mun taka á móti flugmönnunum, Andrei og Keith á Reykjavíkurflugvelli hjá BIRK Flight Services, á bak við Hótel Loftleiði klukkan 12:00 á hádegi á fimmtudaginn.
Í MS Setrinu stendur nú yfir merkileg málverkasýning, EIN LEIÐ, sem opnuð var formlega á fimmtudaginn í s.l. viku, þ. 26. ágúst. Um er að ræða myndlistarsýningu Eddu Heiðrúnar Backman, leikkonu og leikstjóra, sem haldin er sjúkdómnum MND. Við fjölmenna opnun gaf Edda Heiðrún MS Setrinu, Sléttuvegi 5, stóra mynd eftir sig. Edda Heiðrún málar verk sín með munninum. Sýningin er opin virka daga kl. 14-16.
7. september |
Jafnvægisnámskeið |
7. september |
Spjallhópur á Akranesi kl. 17 í Garðakaffi |
7. september |
Spjallhópur á Suðurnesjum kl. 20 í Sjálfsbjargarheimilinu |
8. september |
Yoganámskeið |
LANDSSÖFNUN MS-FÉLAGS ÍSLANDS
MS-félag Íslands þakkar kærlega góðar viðtökur í nýafstaðinni landssöfnun sem fram fór meðal almennings. Ótalmargir sáu sér fært að styrkja félagið og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Framlög landsmanna gera félaginu m.a. kleift að bjóða félagsmönnum upp á margvísleg námskeið og þjónustu.