Spjallhópar á landsvísu
Spjallhópar fólks með MS-sjúkdóminn leynast víða hér á landi og eru fleiri slíkir hópar í farvatninu. Miklar vegalengdir og fámenni er helsti þröskuldurinn fyrir reglulegum og fjölmennum „hittingi“. Til er í dæminu að menn leggi á sig 50 km ferðalag til mánaðarlegra funda sem segir meira en mörg orð um mikilvægi slíkra spjallhópa.
Veturinn 2010/2009 er hægt að sækja um styrk til MS-félagsins til að koma á fót og/eða efla spjallhópa utan höfuðborgarsvæðisins.
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að um reglulega fundi sé að ræða sem auglýsa má á heimasíðu félagsins.
Umsóknir um styrki sendist til msfelag@msfelag.is. Í umsókninni skal tilgreina hvernig styrknum verður varið og einnig upplýsingar um staðsetningu hóps, fundarstað, fundartíma og tengilið (nafn, símanúmer og/eða netfang).
Höfuðborgarsvæðið:
Að öllu jöfnu er ein uppákoma á mánuði í húsi MS-félagsins að Sléttuvegi 5, sem er nánar auglýst á forsíðu undir "á döfinni". Uppákoman getur verið í formi fræðslu, fyrirlestra eða annars félagsstarfs. Öllum er velkomið að koma fram með óskir eða tillögur um dagskrá og aðstandendur eru að sjálfsögðu velkomnir.
Annan miðvikudag í hverjum mánuði kl. 20.00 hittist spjallhópur á Kaffi Amokka í Borgartúni 21a. Á borðinu liggur ávallt ananasblóm og tekið er vel á móti öllum, ungum, eldri, nýgreindum, vel sigldum, aðstandendum, áhugamönnum og hvaðeina. Rætt er um allt á milli himins og jarðar, oftast um annað en sjúkdóminn þó hann komi stundum til tals, þá aðallega einkenni og lyfjamál. Nánari upplýsingar gefur Aðalheiður Rúnarsdóttir, adalheidur.runarsdottir@gmail.com, gsm: 865-4457).
Akranes:
Á Akranesi var stofnaður spjallhópur þann 1. júní s.l. Hópurinn hittist á kaffihúsinu Garðakaffi, sem er rétt hjá byggðasafninu, fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 17 til 19. Tengiliður er Borghildur Ósk Bjarnadóttir (gsm. 662 3729).
Ísafjörður:
Hér er starfandi hópur sem hittist ekki reglulega, en áhugasamir geta haft samband við Ingibjörgu Snorra (gsm: 867-7942) eða Rannveigu Björnsdóttur (s: 456-5326).
Skagafjörður:
Hópastarf í Skagafirði hefur legið niðri í einhvern tíma en áhugasamir hafi samband við Guðlaugu Grétarsdóttur (gsm: 893 2645, netfang: lakjarbakki@simnet.is).
Eyjafjörður:
Fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði um kl. 20 hittast norðanmenn á Veitingahúsinu Greifanum, Glerárgötu 20 á Akureyri. Þangað koma MS-einstaklingar óháð aldri. Ef MS-sjúklingur eða aðstandandi þarf að ná í okkur er annað hvort að mæta til fundar eða hafa samband við Önnu Maríu Þórðardóttur (s: 461-2164) eða Jón Ragnarsson (s: 462-1519). Netfang: jonrt@simnet.is.
MS-fólk á Eyjafjarðarsvæðinu á þess kost að fá æfingahjól heim til sín til afnota endurgjaldslaust. Hjólin eru mjög góð til að byggja upp kraft og þrek í fótum. Áhugasamir hafi samband við Jón Ragnarsson (s: 462-1519, netfang: jonrt@simnet.is).
Austfirðir:
Hér er hópstarf á frumstigi en uppi eru hugmyndir um tölvusamband milli MS-einstaklinga. Áhugasamir hafi samband við Pálínu Hildi Ísaksdóttur (gsm: 862-9998).
Suðurland:
Hópstarf á Suðurlandi hefur legið niðri um tíma, en áhugasamir hafi endilega samband við Sólveigu Ósk Hallgrímsdóttur (gsm: 896-2466).
Vestmannaeyjar:
Í Vestmannaeyjum hittist Eldfjallahópurinn þriðja þriðjudag í mánuði á Volcano Café kl. 17.00. Áhugasamir hafi samband við Guðrúnu Kristmannsdóttur (s. 481-2434, gsm: 896-3427).
Suðurnes:
Spjallhópur er til staðar á Suðurnesjunum og hittist hópurinn fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.00 í Sjálfsbjargarheimilinu, Suðurgötu, Keflavík. Ósk Laufey Óttarrsdóttir (gsm: 892-6963) er í forsvari fyrir hópinn.