Forsíða - MS - sjúkdómurinn - Meðferðir


Á seinni árum hafa orðið miklar framfarir í meðhöndlun MS. Ný lyf eru komin fram sem bæði milda og seinka framgangi sjúkdómsins og vonir standa til þess að senn verði mögulegt að halda honum alveg í skefjum. Auk þessa er hægt að meðhöndla flesta fylgikvilla með góðum árangri, sem hefur í sjálfu sér jákvæð áhrif á sjúkdóminn og getur tafið og jafnvel stöðvað framgang hans.

Meðferð með sterum hefur verið notuð lengi sem meðferð í köstum og er enn í fullu gildi. Frá árinu 1994 var farið að nota fyrirbyggjandi lyf við MS (Rebif, Avonex, Betaferon og síðar Copaxone). Nú er komið á markaðinn nýtt lyf Tysabri sem dregur meira en ofangreind lyf úr tíðni kasta og sjúkdómsvirkni. Byrjað var að gefa það hér á landi í ársbyrjun 2008.

Natalizumab: Ný meðferð við MS
Eftir Hauk Hjaltason, taugalækni við taugadeild Landspítalans í Fossvogi


10 RÁÐ FYRIR SJÚKLINGA

Vertu virkur þátttakandi í meðferðinni

1. Spurðu spurninga
Spurðu ef eitthvað er óljóst eða eitthvað veldur þér áhyggjum. Ekki sætta þig við svör sem þú skilur ekki.

2. Segðu frá
Mikilvægt er að fagfólk fái réttar upplýsingar. Nauðsynlegt er að láta vita af ofnæmi fyrir lyfjum, mat eða einhverju öðru og einnig ef átt von á barni. Gefðu einnig upplýsingar um lyfin sem þú tekur, vítamín, náttúrulyf og/eða ef þú ert á sérstöku mataræði.

3. Láttu vita ef þú finnur til
Það er mikilvægt að fagfólk viti af einkennum þínum eða óvenjulegri líðan, jafnvel þó hún tengist ekki beint veikindunum.

4. Berðu kennsl á sjálfa(n) þig
Vertu viss um að nafn þitt og kennitala sé rétt hjá starfsfólki áður en rannsókn er framkvæmd, þér veitt meðferð eða gefin lyf.

5. Fáðu upplýsingar um meðferðina
Ef þú þarft á meðferð eða rannsókn að halda er gott að ræða við fagfólk áður en hún er framkvæmd. Það er mikilvægt að skilja tilgang rannsókna og niðurstöður þeirra.

6. Betur sjá augu en auga
Gott er að hafa einhvern nákominn hjá þér þegar þú færð upplýsingar um niðurstöður rannsókna. Það getur dregið úr líkum á misskilningi og rangtúlkun.

7. Fræðsla til aðstandenda
Ef þú ert þreytt(ur) eða orkulaus þá er fagfólk tilbúið að veita þínum nánustu upplýsingar um veikindi þín og meðferð.

8. Spurðu um framhald meðferðar
Áður en þú ferð af bráðamóttökunni þarftu að vita um áframhaldandi meðferð, hvar hún er veitt, af hverjum og hvert verður þitt hlutverk.

9. Þekking á lyfjum
Mikilvægt er að þú þekkir lyfin sem þú notar, hvernig þau virka, hversu lengi þú átt að taka þau og hvort matur og drykkur getur dregið úr virkni lyfjameðferðar. Gott er að halda skrá yfir þau lyf sem þú tekur.

10. Skrifaðu minnispunkta á meðan á sjúkrahússdvölinni stendur
Haltu dagbók um reynslu þína í veikindum. Auk þess er gott að skrifa niður spurningar sem þú vilt fá svör við.