Forsíða - Fréttir - Frétt

14. september 2010

Fjölskyldumorgnar á bókasafninu


Mynd með frétt

Borgarbókasafn Reykjavíkur, í samstarfi við Menningarmiðstöðina í Gerðubergi og Leikskólasvið, stendur fyrir fjölskyldumorgnum þar sem fjölskyldum með börn á aldrinum 0-6 ára er boðið að koma og eiga saman góða stund á bókasafninu. Boðið er upp á óformlega dagskrá um ýmis málefni. Leikföng og bækur fyrir börnin eru á staðnum og boðið upp á kaffisopa.

Nánari dagskrá verður mótuð í samstarfi við þátttakendur með þarfir þeirra og óskir að leiðarljósi. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.

TÍMI OG STAÐUR:
Þriðjudaga kl. 10:30-11:30
Borgarbókasafnið í Gerðubergi, Gerðubergi 3-5, s. 557 9122

Fimmtudaga kl. 10:30-11:30
Aðalsafn, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, s. 411 6100

Nánari upplýsingar og dagskrá hér.


til baka