Styrktarsala MS-félags Íslands
Geisladiskurinn „Á Ljúflingshól“, þar sem Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar flytja lög Jóns Múla er til sölu á skrifstofu MS-félags Íslands að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.
Það var Útgáfufélagið Skrjóða sem færði félaginu nokkurt upplag af diskinum að gjöf.
Diskurinn kostar kr. 2.000,- og rennur andvirðið óskipt til MS-félags Íslands. Hægt er að fá diskinn sendan í pósti og leggst þá á sendingargjald kr. 450,-
Stuðningur ykkar eflir okkar starf!