Forsíða - Fréttir - Frétt

10. september 2010

Félagsráðgjöf - Margrét Sigurðardóttir, félagsráðgjafi - pantið tíma á skrifstofu


Mynd með frétt

Við vekjum athygli á því að MS-félagið býður upp á félagsráðgjöf fyrir félagsmenn sína.

Margrét Sigurðardóttir, félagsráðgjafi, er með viðveru á skrifstofu félagsins á föstudögum að öllu jöfnu, og einnig er boðið upp á símaráðgjöf. Nauðsynlegt er að panta tíma á skrifstofunni í síma 568 8620. Ráðgjöfin er endurgjaldslaus fyrir félagsmenn.

Félagsráðgjafi veitir einstaklingum og fjölskyldum þeirra stuðning og ráðgjöf til að takast á við breyttar félagslegar aðstæður sem upp geta komið í kjölfar veikinda.

Félagsráðgjafi veitir einnig upplýsingar um réttindi og styður einstaklinginn og fjölskylduna eftir þörfum.
Starf félagsráðgjafa byggir á sérþekkingu á fjölskyldum, félagslegum úrræðum og á samfélaginu í heild.
Við úrlausn mála er félagsráðgjafinn talsmaður og tengiliður við hinar ýmsu stofnanir eins og Félagsþjónustu sveitarfélaga, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóði, dagvistir, dvalar- og hjúkrunarheimili, vinnuveitendur og aðra þá aðila sem tengjast viðkomandi einstaklingi.

Félagsráðgjöf MS-félagsins er styrkt af Reykjavíkurborg.


til baka