Leiðbeinendur:
Sjúkraþjálfarar á tauga- og endurhæfingarsviði Reykjalundar.
Lýsing:
Námskeiðið miðast fyrst og fremst við þjálfun á jafnvægi, stöðu og hreyfistjórn, krafti og úthaldi. Þjálfunin er færnimiðuð og í formi stöðvaþjálfunar í hópi og verður lögð áhersla á að ögra getu hvers einstaklings. Fræðsla verður um jafnvægi hvíldar og hreyfingar og hreyfivirkni í daglegu lífi með umræðum og afhendi. Teygjur og stutt slökun verður í lok hvers tíma. Áherslan verður ólík eftir dögum, eða eins og hér segir hér:
Þriðjudagar: Upphitun, 20 mín stöðvaþjálfun með áherslu á úthald, 20 mín stöðvaþjálfun með áherslu á færnimiðaða kraftþjálfun og svo teygjur og slökun í lok tímans.
Fimmtudagar: Upphitun, 35 mín stöðvaþjálfun með sértækum æfingum á jafnvægi, stöðu, hreyfistjórn og fallviðbragði, teygjur og slökun í lok tímans.
Þátttakendur:
Einstaklingar sem sækja ekki dagvist MS, eru með greiningu um MS sjúkdóm og geta gengið með eða án gönguhjálpartækja.
Tími:
Námskeiðið hófst 5. janúar og stendur út apríl. Hópur A er kl. 16 á fimmtudögum og hópur B kl. 17 á fimmtudögum. Sameiginlegur tími fyrir alla sem skráðir eru 2 x í viku er kl. 16 á þriðjudögum.
FULLBÓKAÐ ER Í NÁMSKEIÐIÐ.
Námskeiðið er rausnarlega styrkt af Svölunum, félagi núverandi og fyrrverandi flugfreyja og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.