Annan miðvikudag í hverjum mánuði kl. 20.00 hittist spjallhópur á Kaffi Amokka í Borgartúni 21a.
Á borðinu liggur ávallt ananasblóm og tekið er vel á móti öllum, ungum, eldri, nýgreindum, vel sigldum, aðstandendum, áhugamönnum og hvaðeina. Rætt er um allt á milli himins og jarðar, oftast um annað en sjúkdóminn þó hann komi stundum til tals, þá aðallega einkenni og lyfjamál. Nánari upplýsingar gefur Aðalheiður Rúnarsdóttir, adalheidur.runarsdottir@gmail.com, gsm: 865-4457).